Minnum á handboltaskóla ÍR sem byrjar á þriðjudaginn!
Tveggja vikna handboltanámskeið fyrir krakka fædd 2004-1997. Æfingar standa yfir í tvær klukkustundir dag hvern og fara fram í íþróttahúsinu við Austurberg.
Skólastjóri er Sigurjón Björnsson(Sjonni)! Sjonni er hokinn af reynsu, en hann er íþróttafræðingur að mennt og hefur þjálfað handbolta í 6 ár, allt frá 6. Flokki upp í 3. Flokk. Sjonni hefur spilað í meistaraflokki síðan 2006 og varð íslandmeistari með HK 2011 og bikar- og meistari meistarana með ÍR 2013. Sjonni er uppalinn ÍR-ingur og hefur alla sinn ferill leikið með ÍR utan tvö ár sem hann lék með HK.
Takmarkaður fjöldi kemst að í hvort námskeið og því er mikilvægt að skrá sig sem fyrst.
Námskeiðsvikur:
10.-24. júní
5.-18. ágúst
Æfingatímar og aldursflokkar:
10-12 ára(02-04) kl. 09:00-11:00
13-14 ára(01-00) kl. 11:30-13:30
15-16 ára(99-97) kl. 13:30-15:30
Verð: 14.500 kr.
Skráning á www.ir.is
Nánari upplýsingar hjá starfsfólki ÍR í síma 587-7080
ÍR Handbolti - 4. fl karla yngra ár
Skráðu netfangið þitt hér hægra megin á síðunni! Þannig færðu tilkynningar hér á bloggsíðunni sendar í netpósti.
Sunday, June 8, 2014
Handboltaskóli ÍR
Wednesday, May 7, 2014
Tuesday, May 6, 2014
Eurovision eða Handbolt í kvöld ?
Tuesday, April 29, 2014
4.fl. ka. yngra ár komnir áfram í undanúrslti Íslandsmóts
Mið. 30.apr. kl. 17.30 Síðuskóli Þór Ak. - ÍR 1
Fim. 1.maí. kl. 12.00 Schenkerhöllin Haukar - FH Sun. 4.maí.2014
Sun. 4.maí. kl. 10.00 Austurberg Úrslitaleikur - Úrslitaleikur
Monday, April 28, 2014
Tuesday, March 11, 2014
AÐALFUNDUR HANDKNATTLEIKSDEILDAR ÍR
Aðalfundur handknattleiksdeildar ÍR verður haldinn miðvikudaginn 19. mars n.k.
Fundartími: miðvikudaginn 19. mars 2013 kl. 19:30
Staður: ÍR heimilið í mjódd, 2. hæð
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins.
3. Lesnir og skýrðir rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir síðasta almanaksár.
4. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
5. Kosinn formaður.
6. Kosnir aðrir stjórnarmenn og tveir stjórnarmenn til vara.
7. Kosnir fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund félagsins.
8. Ákveðin æfingagjöld.
9. Önnur mál.
Við hvetjum allt áhugafólk um ÍR-handbolta að mæta og kynnast starfinu betur. Framboð hafa borist í allar stöður stjórnar en við hvetjum fólk til að íhuga að koma og taka þátt.
Kveðja Stjórnin