mánudagur, 14. maí 2012

Handboltaskóli ÍR, Bjarna Fritz og Stulla


Bjarni Fritz var í heimsókn hjá þjálfara ársins Degi Sigurðssyni í Fuchse Berlin, í smá þjálfara kennslu og kemur með kollinn fullan af nýjum æfingum og hugmyndum :)

Æfingatímar eru eftirfarandi:
 11-12 ára(00-01) kl. 10.00-12.00
13-14 ára(98-99) kl. 13.00-15.00
15-16 ára(96-97) kl. 15.00-17.00

mánudagur, 30. apríl 2012

MYNDATAKA - ALLIR FLOKKAR - SKYLDUMÆTING


Það verður myndataka af öllum flokkum í Austurbergi næsta fimmtudag, 3. maí kl.17:30 (tekur ca 1 tíma).

Það verða teknar myndir af hverjum flokk fyrir sig og svo öllum flokkunum saman ásamt meistaraflokk.

SKYLDUMÆTING, ENGIN UNDANTEKNING! 
ALLIR AÐ MÆTA Í KEPPNISBÚNING. 


Allar æfingar á milli kl. 17:30 og 19:00 falla niður. Það verður óvænt uppákoma sem enginn ÍRingur vill missa af

Með ÍR kveðju, barna-unglingaráð og stjórn handknattleiksdeildar ÍR

fimmtudagur, 22. mars 2012

Allir að mæta á leik ÍRinga og Víkinga föstudag kl.19:30

Mikilvægur leikur fyrir okkur öll sem tengjast ÍR handboltanum, nánar um leikinn >>HÉR<< Allir að mæta í hvítu og bláu. Grillið opið á milli kl.18:00 og 19:00 hamborgari + gos + aðgangur kr. 500- fyrir kl. 19:00.
Hefðbundin miðasala eftir kl. 19:00 ókeypis aðgangur fyrir 16 ára og yngri.
Siggi á flugi hátt yfir Víkingum

laugardagur, 3. mars 2012

Strákarnir í 4. flokk B-liði sigruðu Víkinga!

Strákarnir í 4. flokk B-liði sigruðu Víkinga í alveg hreint ótrúlegum leik.
Leikurinn endaði 22:20 fyrir ÍR en í byrjun leiks leit þetta ekki vel út fyrir okkar menn þar sem víkingar voru 9:1 yfir. En það sýnir sig enn og aftur að það á ekki að gefast upp, allt er hægt með vilja og þrautseyju. Það vantaði þó nokkra leikmenn vegna meiðsla og fl. strákarnir voru 8 talsins sem lönduðu ÍR sigri í þetta skiptið.
Hægt er að skoða myndir úr leiknum inn á myndasíðu flokksins.

laugardagur, 25. febrúar 2012

ÞIÐ GETIÐ STÓRAUKIÐ TEKJUR ÍR HANDBOLTANS


Foreldrar, iðkendur og aðrir ÍRingar!
Nú er BOGUR að fara af stað með sölu á auglýsingum inn á breyttum bloggsíðum ÍR Handboltans. Allar tekjur munu renna óskiptar í handboltastarfið. Vefstjórar gefa alla sína vinnu og þið eruð ekki síður mikilvæg þar sem umferð/heimsóknir á síðunum skipta höfuðmáli fyrir sölu á auglýsingum á netinu.

Þetta getur þú gert til að auka umferðina á ÍR handboltabloggsíðunum.
Munið að þegar þið fáið sjálfvirkan netpóst frá bloggsíðunum með tilkynningu eða frétt sem þið klikkið á, þá eruð þið að auka væntanlegar auglýsingatekjur ÍR Handboltans.
Vertu vinur okkar á Facebook, klikkaðu hér--->  og LIKE!

ÍR kveðjur frá Netstjórum (BOGUR)