Nú hafa æfingar staðið í u.þ.b. tvær vikur hjá deildum félagsins og komið er að því að forráðamenn gangi frá skráningu og greiðslu. Skrifstofa ÍR ætlar að vera fólki innan handar þriðjudaginn 13.september kl.16:00-20:00 á 2.hæð ÍR heimilis. Greiðslukort eða reiðufé þarf að hafa við hendina. Þau sem vilja gera þetta sjálf á netinu og hafa kreditkort við hendina geta farið inn á slóðina https://ir.felog.is. >>LEIÐBEININGAR<<
Kerfið er samtengt Rafrænni Reykjavík og því er mjög auðvelt að ráðstafa styrknum á sama tíma, sem svo dregst frá heildarupphæðinni. Kerfið býður uppá að geta skipt upp kreditkortagreiðslu á nokkur tímabil, allt eftir upphæð æfingagjalda. Einnig reiknast sjálfkrafa systkinaafsláttur af verði hjá seinna barni.
No comments:
Post a Comment